Lesblinda

Oft er orðið lesblinda eða dyslexia notað sem samheiti yfir námsörðugleika eins og lesblindu, reikniblindu eða skrifblindu.

Margir foreldrar þekkja þá reynslu að vinna með barninu sínu í heimanámi en uppskera lítinn árangur. Hefðbundin skólakennsla virðist ekki henta og barnið dregst aftur úr, upplifir mikla erfiðleika í námi, óskýranlegir maga- og höfuðverkir gera vart við sig, og oft ýmiskonar kvíði og vanlíðan.

En lesblinda á ekki bara við um börn, margir fullorðnir eru með lesblindu, þó þeir hafi aldrei fengið greiningu. Talið er að allt að 10 prósent þjóðarinnar sé með lesblindu en sumir eru aldrei greindir.


Náðargjöfin



  • Að hafa sérstaklega mikið ímyndunarafl.
  • Að vera sérstaklega meðvitaður um umhverfi sitt.
  • Að hugsa frekar í myndum en orðum sem gerir hugsunina mun hraðari.
  • Að vera mjög forvitin/n.
  • Að nýta öll skilningarvitin í einu.
  • Að skynja og hugsa í þrívídd.
  • Að geta upplifað hugsun sem veruleika.


Vandamálin


  • Að sleppa stöfum eða víxla við lestur.
  • Að finnast stafir hreyfast eða hverfa.
  • Að fara línuvillt.
  • Að eiga erfitt með stafsetningu.
  • Að gera ekki mun á stórum og litlum stöfum.
  • Að lesa ekki eftir greinamerkjum.
  • Að svima, syfja eða vera flökurt við lestur.
  • Að eiga erfitt með að skrifa skiljanlega.
  • Að vera í vandræðum með stærðfræði og tölur.
  • Að þekkja ekki hægri og vinstri.
  • Að umhverfið truflar.
  • Að vera áttavilltur.
  • Að eiga erfitt með að læra á klukku.
  • Að eiga erfitt með að vera á réttum tíma.
  • Að gleyma þér í dagdraumum og fylgjast ekki með.
  • Að eiga erfitt með að skipuleggja þig.


Ef þú kannast við fleiri en 10 atriði er lesblinda líklega skýringin.

Með Davis® aðferðinni leiðbeinum við lesblindum hvernig þeir geta notað náðargjöfina til að vinna á vandamálunum.

 

 


 Hafðu samband


 

Lesblindulist • Völuteigur 8 • 270 Mosfellsbær • lesblindulist@lesblindulist.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hısir.is
webstat