Davis® viðtal.


Einstaklingurinn kemur í viðtal sem tekur um 2 klst. Þar er lagt mat á hvort Davis® aðferðin hentar.



Leiðréttingin.


Tekur um það bil 30 klst. sem unnin er á fimm til tíu dögum.

Í lok leiðréttingarinnar er þjálfaður stuðningsaðili til að aðstoða við heimavinnu.

Innifalin er eftirfylgni.

Hvað er Davis® leiðrétting?

Davis® leiðrétting er hnitmiðað einstaklingsnámskeið þar sem Davis® ráðgjafinn leiðir nemandann skref fyrir skref gegnum námskeiðið með leirvinnu á hraða sem hentar hverjum og einum.

Við notum jákvæðu þætti lesblindunnar sem er til dæmis frjótt ímyndunarafl og myndræn hugsun til þess að vinna á námsörðugleikunum.

Við notum leir til að breyta tvívídd í þrívídd og notum bolta til að þjálfa jafnvægi, samhæfingu og athygli.




Skynvilla: Bjögun á skynjun


Eitt af meginmarkmiðum Davis® leiðréttingar er að leiðrétta skynjun - og dregur námskeiðið nafn sitt af því.

Í þessu felst sú staðreynd að skynjun getur verið nákvæm, eða ónákvæm.

Nákvæm skynjun er nauðsynleg við lestur og nám - tala má um einbeitingu í þessu sambandi.
Ónákvæm skynjun kallast "skynvilla".

Dæmi um skynvillu má sjá hér að neðan - ef þér sýnist myndin hreyfast þá er um skynvillu að ræða.
Ímyndaðu þér hvernig skynvillan getur bjagað lestur hjá lesblindum einstaklingi þegar um bókstafi er að ræða.

Hafðu samband

Lesblindulist • Völuteigur 8 • 270 Mosfellsbær • lesblindulist@lesblindulist.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hısir.is
webstat