Reikniblinda


Reikniblinda (dyscalculia) tengist erfiðleikum í stærðfræði. Algengt er þó að vandamál tengd stærðfræði stafi einfaldlega af slökum kennsluaðferðum og varast skal að blanda því saman við reikniblindu.

Einnig geta "hefðbundin" lesblindueinkenni truflað nemandann í stærðfræði, svo sem ruglingur með tákn.

Einkenni reikniblindu geta meðal annars verið eftirfarandi:

  • er lengi að læra að telja
  • á erfitt með að skilja samband milli fjölda og tölustafs
  • "veit" (man) hvað 3+3 er en reiknar 3+4 á fingrum
  • á erfitt með að læra margföldunartöfluna
  • á í erfiðleikum með að skilja reiknireglur ("taka til láns", "geyma")
  • lærir seint á klukku
  • slakt tímaskyn



Algengt er að þeir sem eru mjög dagdreymnir (utan við sig) eða greindir með ADD, glími einnig við erfiðleika tengda stærðfræði og tíma.


 

 Hafðu samband

Lesblindulist • Völuteigur 8 • 270 Mosfellsbær • lesblindulist@lesblindulist.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hısir.is
webstat